breyting á deiliskipulagi
Lækjargata 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 830
21. júlí, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Björns Skaptasonar dags. 4. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Lækjargötu 10 og 12, Vonarstræti 4-4b og Skólabrú 2 vegna lóðarinnar nr. 12 við Lækjargötu. Í breytingunni felst að bætt er við heimild til þess að gera þaksvalir á inndregnum húshluta á þaki 4. hæðar að Vonarstræti og inngarði, samkvæmt uppdr. Atelier Arkitekta slf. dags. 3. febrúar 2021. Tillagan var auglýst frá 4. júní 2021 til og með 16. júlí 2021. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar