breyting á deiliskipulagi
Nýlendugata 21 og 21A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 830
21. júlí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. maí 2021 var lögð fram fyrirspurn Stefáns Arnar Stefánssonar dags. 5. maí 2021 ásamt greinargerð dags. 7. apríl 2021 um breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðanna nr. 21 og 21A við Nýlendugötu sem felst í að auka megi porthæð við leyfða hækkun þaks á báðum lóðum, heimilað verði að hafa áfram tvær hæðir í bakbyggingu á lóð nr. 21 ásamt tengibyggingu við framhús, heimilað verði stigahús að gangstétt á lóð nr. 21A og stakstætt vinnuhúsnæði á baklóð á einni hæð ásamt því að heimilt verði að vera með sjö íbúðir innan lóða, samkvæmt uppdr. Argor ehf. dags. 1. febrúar 2021. Einnig er lagt fram yfirlit yfir núverandi stærðir og fyrirhugaða stækkun. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júli 2021.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. júlí 2021, samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100171 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024239