breyting á deiliskipulagi
Kirkjuteigur 24, Laugarnesskóli
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 696
31. ágúst, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 31. maí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis, með síðari breytingum, vegna lóðarinnar nr. 24 við Kirkjuteig. Í breytingunni felst að gerður er byggingarreitur fyrir færanlega kennslustofu ásamt tengigangi í gám sem notaður verður fyrir starfsfólk leikskólans. Byggingarreitur er staðsettur á lóð austan megin við núverandi færanlegar kennslustofur sem staðsettar eru norður af leikskólanum Hofi. Núverandi göngustígur frá Hofteig inn á skólalóð verður að hluta til færður til austurs, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 31. maí 2018. Einnig er lagt fram minnisblað skóla- og frístundasviðs dags. 22. júní 2018. Tillagan var auglýst frá 17. júlí 2018 til og með 28. ágúst 2018. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar