(fsp) breyting skilmálum deiliskipulags
Austurbakki 2, Tónlistarhús
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 600
9. september, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 19. ágúst 2016 var lögð fram fyrirspurn PK-Arkitekta ehf., mótt. 10. ágúst 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna lóðarinnar nr. 2 við Austurbakka. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni neðanjarðar á reit 1 og 2, samkvæmt uppdr. PK-Arkitekta ehf., dags. 2. júní 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. september 2016.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. september 2016 samþykkt.