Ofanábygging og svalir
Baldursgata 10
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 762
21. febrúar, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. október 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja hæð úr timbri, klædda bárujárni, ofan á núverandi hús á lóð nr. 10 við Baldursgötu. Einnig er lagður fram skuggavarpsuppdr. Teiknistofunnar Óðinstorgi ehf. dags. 14. nóvember 2019. Erindi var grenndarkynnt frá 5. nóvember 2019 til og með 3. desember 2019 og frá 18. desember 2019 til og með 20. janúar 2020. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, formaður húsfélagsins að Baldursgötu 12, dags. 28. nóvember 2019, Guðrún Kristjánsdóttir og Ævar Kjartansson dags. 1. desember 2019, Friðþjófur Högni Stefánsson, Signý Ósk Davíðsdóttir, Sigurjón Gísli Helgason og Þóra Jónsdóttir dags. 3. desember 2019 og Hildur Guðmundsdóttir dags. 17. janúar 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. janúar 2020 og er nú lagt fram að nýju.
Erindi fylgir afrit í A4 af eldri samþykktum teikningum. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. september 2019. Stækkun: 98,6 ferm., 250,7 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102228 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007545