breyting á deiliskiplagi
Hafnarstræti 18
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 762
21. febrúar, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. janúar 2020 var lögð fram umsókn Páls V. Bjarnasonar dags. 10. janúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 18 við Hafnarstræti. Í breytingunni felst að byggja einnar hæðar viðbyggingu við austurgafl hússins með þaksvölum, samkvæmt uppdr. P ARK teiknistofu dags. 20. september 2019. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 23. september 2019 og samþykkt borgarráðs frá 9. janúar 2020 ásamt bréfi skrifstofu borgarstjóra og borgarritara dags. 6. janúar 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hafnarstræti 20 og Lækjartorgi 1.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100837 → skrá.is
Hnitnúmer: 10012168