breyting á deiliskipulagi
Grjótháls 1-3
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 739
16. ágúst, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn T.ark Arkitekta ehf. dags. 9. ágúst 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Hálsahverfi vegna lóðarinnar nr. 1-3 við Grjótháls. Breytingin felst í skilmálabreytingu sem hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar ofanjarðar í 0,75.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018, áður en breytingin er auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.