breyting á deiliskipulagi
Grjótháls 1-3
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 765
13. mars, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn T.ark Arkitekta ehf. dags. 2. október 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 1-3 við Grjótháls. Í breytingunni felst í megin atriðum stækkun á byggingarreit ofanjarðar um fjóra metra til suðurs, hækkun hæðar húss innan hans um 1,5 metra og hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar úr 0.7 í 0.95, samkvæmt deiliskipulagsuppdr. dags. 2. október 2019, br. 20. janúar 2020. Einnig er lagt fram bréf T.ark Arkitekta ehf. dags. 20. janúar 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 3. febrúar 2020 til og með 2. mars 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Steinþór Skúlason f.h. SS dags. 21. febrúar 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. mars 2020 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.