breyting á deiliskipulagi
Grjótháls 1-3
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 809
19. febrúar, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. febrúar 2021 var lögð fram umsókn T. ark Arkitekta ehf. dags. 18. janúar 2021 ásamt bréfi dags. 18. janúar 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 1-3 við Grjótháls. Í breytingunni felst að gerður er nýr byggingarreitur fyrir dreifistöð sem liggur að vestari lóðamörkum að Grjóthálsi 5, samkvæmt uppdr. T.ark Arkitekta ehf. dags. 15. janúar 2021. Einnig er lagt fram samþykki lóðarhafa að Grjóthálsi 5 mótt. 18. febrúar 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 8.2 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.