(fsp) breyting á deiliskipulagi
Gjúkabryggja 4
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 809
19. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. febrúar 2021 var lögð fram fyrirspurn Hugrúnar Þorsteinsdóttur dags. 27. janúar 2021 um breytingu á deiliskipulagi Bryggjuhverfis vegna lóðarinnar nr. 4 við Gjúkabryggju (reitur D) sem felst í fjölgun íbúða, fjölgun bílastæða í kjallara, dýpkun byggingarreits úr 15 m í 16,5 m og að lengja 4. hæð á byggingu norðan megin á reit, samkvæmt uppdr. M11 teiknistofu dags. 26. janúar 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. febrúar 2021.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. febrúar 2021 samþykkt.