breyting á deiliskipulagi
Laugarásvegur 37
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 769
17. apríl, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Sveinbjörns Jónssonar dags. 28. janúar 2020 um breytingu á deiliskipulagi Kleifarvegar 1.282.1 vegna lóðarinnar nr. 29-37 við Laugarásveg. Breytingin felst í stækkun á bílgeymslulóð sem tilheyrir Laugarásvegi 29-37 og er við enda Kleifarvegar, samkvæmt uppdrætti Mönduls verkfræðistofu dags. 28. janúar 2020. Einnig er lagt fram samþykki eigenda bílskúra við Laugarásveg 29, 29a og 35 dags. 12. ágúst 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 9. mars 2020 til og með 6. apríl 2020. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagt fram samþykki hluta hagsmunaaðila mótt 3. mars 2020.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt með vísan til a. liðar 2. gr. í viðauka 2.3 um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa nr. 1020/2019.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104827 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016703