framkvæmdaleyfi
Sjómannaskólareitur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 769
17. apríl, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Helga Mars Hallgrímssonar dags. 6. febrúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kennaraháskóla Íslands vegna lóða A og B. Í breytingunni felst stækkun byggingarreita A2 og B1 ofan- og neðanjarðar vegna stigahúss ásamt því að byggingarreitum A6 og B6 er bætt við neðanjarðar og má því byggja samfelldan kjallara á milli A2 og A3 annars vegar og B1 og B2 hins vegar. Hámarkstærð byggingarmagns á reit A2 og B1 lækkar um það magn sem bætist við með nýjum byggingarreitum A6 og B6, samkvæmt uppdr. a2f arkitekta ehf. dags. 30. janúar 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 9. mars 2020 til og með 6. apríl 2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.