breyting á deiliskipulagi
Laugarásvegur 37
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 762
21. febrúar, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. janúar 2020 var lögð fram umsókn Sveinbjörns Jónssonar dags. 28. janúar 2020 um breytingu á deiliskipulagi Kleifarvegar 1.282.1 vegna lóðarinnar nr. 29-37 við Kleifarveg. Breytingin felst í stækkun á bílgeymslulóð við enda Kleifarvegar samkvæmt, uppdrætti Mönduls verkfræðistofu dags. 28. janúar 2020. Einnig er lagt fram samþykki eigenda bílskúra við Laugarásveg 29, 29a og 35 dags. 12. ágúst 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Vesturbrún 20 og 22.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104827 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016703