breyting á deiliskipulagi
Háaleitisbraut 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 762
21. febrúar, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn THG Arkitekta ehf. , mótt. 31. maí 2017, ásamt tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 1 við Háaleitisbraut. Í tillögunni felst að bætt verður við tveimur nýjum byggingarreitum á lóð Háaleitisbrautar 1 auk þess sem heimilt verður að stækka hús Veitna við Bolholt 5. Næst Kringlumýrarbraut verður heimilt að reisa fimm hæða skrifstofubyggingu með bílakjallara. Á horni Skipholts og Bolholts verður heimilt að reisa sex hæða íbúðarhús með bílakjallara ásamt þjónustu- og verslunarrými á 1. hæð. Bílastæðum fjölgar og verður hluti þeirra í bílakjallara. Byggingarmagn og nýtingarhlutfall hækkar á báðum lóðum sem þessu nemur, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 4. nóvember 2019. Einnig er lagt fram minnisblað Mannvits um hljóðvist dags. 16. nóvember 2017, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 8. maí 2019, húsakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 5. júlí 2019 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. júlí 2019. Tillagan var auglýst frá 16. desember 2019 til og með 29. janúar 2020. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir: Jóhanna Margeirsdóttir dags. 29. janúar 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. janúar 2020 og er nú lagt fram að nýju einnig umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. febrúar 2020.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.