(fsp) rekstur verslunar, kaffihúss og bakarís á jarðhæð hússins
Laugavegur 55
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 680
11. maí, 2018
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. maí 2018 var lögð fram fyrirspurn Gunnars Bergmanns Stefánssonar dags. 3. maí 2018 um breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.0 vegna lóðarinnar nr. 55 við Laugaveg sem felst í að þakfleti á stöllun byggingar má nýta sem þaksvalir/þakgarða, hækkun á þakkóta lyftuhúss og uppfæra skilmála vegna bílastæða, samkvæmt uppdr. Arkitektastofunnar gb DESIGN ehf. dags. 2. maí 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2018..
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2018 eru ekki gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101507 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017576