Endurnýjun útveggja - breyting í mötuneyti o.fl.
Bæjarháls 1
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 762
21. febrúar, 2020
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. febrúar 2020 þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja og breyta útvegg Vesturhúss höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur, endurnýjun eininga í mötuneyti og stækkun tæknirýmis á hæð -3 í húsi á lóð nr. 1 við Bæjarháls. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dag. 21. febrúar 2020.
Erindi fylgir minnisblað um brunatæknilega hönnun frá Verkís dags. 19. desember 2019, brunahönnunarskýrsla Eflu dags. 29. janúar 2019, varmatapsútreikningar dags. 17. janúar 2020 og afrit af samþykktum teikningum með yfirliti yfir breytingar. Breyting á stærðum: Stækkun í brúttófermetrum: 221,4 ferm. Minnkun í rúmmáli: -235,4 rúmm. Heildarstærð húss eftir breytingar: 14.183,5 ferm., 63.990,4 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. febrúar 2020.