(fsp) hreinsun ofanvatns fyrir hluta nýs Arnarnesvegar og breikkun Breiðholtsbrautar
Elliðaárdalur við Dimmu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 770
24. apríl, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar að deiliskipulagi fyrir borgargarðinn í Elliðaárdal. Skipulagið byggir á grunni eldra deiliskipulags sem var samþykkt árið 1994 sem fellt er úr gildi. Í tillögunni eru afmörkuð og skilgreind hverfisverndarsvæði í dalnum, gerð grein fyrir helstu göngu- og hjólastígum ásamt nýjum þverunum yfir Elliðaárnar og skilgreind helstu útivistar- og áningarstaðir, samkvæmt uppdr. Landslags. ehf. dags. 10. febrúar 2020. Einnig er lögð fram greinargerð Landslags ehf. um forsendur deiliskipulags dags. 10. febrúar 2020, greinargerð Landslags ehf. um stefnumörkun og skilmála dags. 10. febrúar 2020, skýringarmynd Landslags ehf. dags. 10. janúar 2020 og drög Borgarsögusafns Reykjavíkur að varðveislumati og húsaskrá fyrir Elliðaárdalinn. Einnig er lagður fram tölvupóstur stjórnar Hollvinasamtakanna dags. 19. mars 2020 og bréf Halldórs Páls Gíslasonar f.h. Hollvinasamtaka Elliðaárdals dags. 21. apríl 2020.
Svar

Samþykkt að framlengja auglýsingafrest til 18. maí 2020.