(fsp) hreinsun ofanvatns fyrir hluta nýs Arnarnesvegar og breikkun Breiðholtsbrautar
Elliðaárdalur við Dimmu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 697
7. september, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi fyrir Elliðaárdal. Í breytingunni felst að vegna nýs deiliskipulags fyrir Vogabyggð, svæði 5, þá er afmörkun skipulags Elliðaárdals breytt á þann hátt að mörk skipulagsins eru dregin vestan Geirsnefs í vesturál Elliðaánna, samkvæmt uppdr. Landslags dags. 31. maí 2018. Tillagan var auglýst frá 20. júlí 2018 til og með 31. ágúst 2018. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar