breyting á deiliskipulagi
Skúlagata 28
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 697
7. september, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Magnúsar Jenssonar f.h. S28 ehf. dags. 21. mars 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Barónsreits vegna lóðarinnar nr. 28 við Skúlagötu. Í breytingunni felst m.a. ýmsar breytingar á byggingarreitum m.a. er 6. hæðin stækkuð til suðurs, bætt við byggingarreit fyrir glerskála í inngarð og byggingarreitur til vesturs minnkaður. Einnig er breytt heimild til nýtingar kjallararýma úr bílageymslu í fjölþættari notkun, samkvæmt uppdr. Magnúsar Jenssonar dags. 18. mars 2018 síðast breytt 30.mai 2018. Tillagan var auglýst frá 17. júlí 2018 til og með 28. ágúst 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Sturla Geirsson f.h. Rauðsvíkur ehf og Hverfisgötu 85-93 ehf. dags. 21. ágúst 2018. Einnig er lögð fram umsögn Veitna ohf. dags. 28. ágúst 2018. Jafnframt er lagt fram bréf T.ark Arkitekta ehf. dags. 24. ágúst 2018 og tölvupóstur Sturlu Geirssonar f.h. Rauðsvíkur ehf og Hverfisgötu 85-93 ehf. dags. 30. ágúst 2018 þar sem athugasemdir eru dregnar til baka. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. ágúst 2018 og er nú lagt fram að nýju ásamt minnisblaði skipulagsfulltrúa dags. 6. september 2018.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

101 Reykjavík
Landnúmer: 101119 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017755