Fjölbýlishús
Snorrabraut 54
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 818
30. apríl, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Sigurðar Hallgrímssonar dags. 22. september 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 54 við Snorrabraut. Í breytingunni felst að lóð nr. 54 við Snorrabraut er stækkuð um 102 m2 og lóð nr. 45A við Barónsstíg (Sundhöll Reykjavíkur) er minnkuð samsvarandi. Fyrirkomulag bílastæða á lóð Sundhallar breytist og bílastæðum fækkar lítillega. Einnig er gerð minni háttar breyting á byggingarreit Snorrabrautar 54 og byggingarmagn aukið um 400 m2 (aðallega neðanjarðar), samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Arkþing/Nordic ehf. dags. 4. febrúar 2021. Tillagan var auglýst frá 2. mars 2021 til og með 13. apríl 2021. Eftirtaldir sendu ábendingu/umsögn: Veitur ohf. dags. 13. apríl 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. apríl 2021 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.