Stöðuleyfi - gámur
Sogavegur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 818
30. apríl, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. apríl 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu, með snyrtingu í kjallara og stækkun við eldhús og nýrri aðkomu á 1. hæð, við norðvestur hlið einbýlishúss á lóð nr. 60 við Ásvallagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. apríl 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. apríl 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 12. apríl 2021. Stækkun: 20.6 ferm., 100.9 rúmm. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Ásvallagötu 58, 62, 75, 77 og 79 og Sólvallagötu 57, 59 og 61.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020211