Brunastigi - breyting inni
Sóleyjargata 31
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 653
13. október, 2017
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. september 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. september 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í kjallara og á 1. hæð, bæta við einu gistiherbergi í bílskúr, koma fyrir brunastiga á bakhlið frá 2. hæð og björgunarpalli á þaki og innrétta gististað í flokki II á lóð nr. 31 við Sóleyjargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 13. október 2017.
Lagðar eru fram umsagnir skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2017 og 25. ágúst 2014. Gjald kr. 11.000
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2017.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102749 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019345