Ofanábygging - viðbygging- fjölgun íbúða
Dunhagi 18-20
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 653
13. október, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa dags. 11. júlí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að rífa bílskúra, byggja inndregna 4. hæð, byggja viðbyggingu við fyrstu hæð og kjallara, minnka og fjölga íbúðum úr 8 í 20, koma fyrir lyftu utan á húsinu og sorpgerði fyrir verslunarrými í norðvesturhluta lóðar nr. 18 - 20 við Dunhaga. Einnig er lagður fram tölvupóstur Jörundar Guðmundssonar, dags. 23. ágúst 2017, þar sem ekki er gerð athugasemd við fyrirhugaðar breytingar og tölvupóstur Einars Ólafssonar dags. 29. ágúst 2017 þar sem óskað er eftir að athugasemdafrestur verði framlengdur um tvær vikur. Erindi var grenndarkynnt frá 22. ágúst 2017 til og með 3. október 2017. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Ásta Logadóttir, dags. 24. ágúst 2017 og 3. október 2017, Hildur Þórisdóttir, dags. 10. september 2017, Eyþór Mar Halldórsson, dags. 11. september 2017, Ásdís Schram, dags. 18. sept. 2017, Sólveig K. Jónsdóttir f.h. eigendur og íbúa að Hjarðarhaga 27, dags. 27. september 2017, Áslaug Árnadóttir hdl. f.h. hagsmunaaðila, dags. 2. október 2017 og Einar Ólafsson, dags. 3. október 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. október 2017 og er nú lagt fram að nýju.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. júní 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. júní 2017.
Niðurrif bílskúra mhl. 02: 102,2 ferm., 324 rúmm.
Stækkun viðbyggingu kjallara, 1. hæð og 4 hæð : 1010 ferm., 2.548 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs