breyting á deiliskipulagi
Gullslétta 1
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 895
1. desember, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn K.J.ARK slf. dags. 20. júlí 2022 um breytingu á deiliskipulagi Esjumela vegna lóðarinnar nr. 1 við Gullsléttu. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að skipta upp lóðinni í fjórar lóðir, breyta byggingareitum, færa innkeyrslur til ásamt því að bæta einni við og hækka/samræma hæðina á húsunum óháð því hvort um vegghæð eða mænishæð er að ræða, samkvæmt uppdr. K.J.ARK slf. dags. 19. júlí 2022. Einnig lagður fram tölvupóstur íbúaráðs Kjalarness dags. 3. nóvember 2022, þar sem óskað er eftir framlengdum athugasemdartíma. Tillagan var auglýst frá 27. september 2022 til og með 24. nóvember 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir: íbúaráðs Kjalarness dags. 3. nóvember 2022, Sigríður Ingólfsdóttir dags. 8. nóvember 2022. Einnig er lögð fram ábending Veitna dags. 7. október 2022.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

162 Reykjavík
Landnúmer: 197700 → skrá.is
Hnitnúmer: 10113264