Sótt um byggl. fyrir 2ja hæða staðsteypt atvinnuhúsnæði.
Silfurslétta 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 853
21. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. janúar 2022 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja tveggja hæða steinsteypt atvinnuhúsnæði með geymslum á neðri hæð og skrifstofum með tilheyrandi stoðrýmum á efri hæð sem jafnframt er fyrsti áfangi, mhl.01, uppbyggingar á lóð nr. 2 við Silfursléttu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. janúar 2022.
Stærðir: 1.259.4 ferm., 4.508,4 rúmm. Erindi fylgir lóðauppdráttur 34.534.1 dags. 14.07.2021 og hæðablað 34.534.1- B1 dags í júní 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. desember 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. nóvember 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 6. desember 2021. Gjald kr. 12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. janúar 2022, samþykkt.

162 Reykjavík
Landnúmer: 197699 → skrá.is
Hnitnúmer: 10122219