ósk um umsögn vegna endurnýjunar á starfsleyfi
Malarhöfði 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 853
21. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. janúar 2022 var lagt fram erindi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 10. janúar 2022 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa vegna umsóknar Steypustöðvarinnar um endurnýjun á starfsleyfi fyrir starfsemina að Malarhöfða 10. Óskað er eftir umsögn um hvort breytingar á skipulagi leyfi endurnýjun starfsleyfis til skamms tíma, og þá hversu langan tíma. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. janúar 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. janúar 2022, samþykkt.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110553 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022742