breyting á deiliskipulagi
Salthamrar 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 748
25. október, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. september 2019 var lögð fram umsókn Ingólfs Freys Guðmundssonar dags. 30. ágúst 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis vegna lóðarinnar nr. 1 við Salthamra. Í breytingunni felst að stækka byggingarreit lóðarinnar til að koma fyrir viðbyggingu á suðausturhorni hússins, samkvæmt uppdr. Kollgátu dags. 23. maí 2019. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Salthömrum 2, 3, 5, 7 og 12.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., og 12. gr. sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109007 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014342