Nýir kvistir og svalir
Langagerði 22
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 880
18. ágúst, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. ágúst 2022 þar sem sótt er um leyfi til þess að bæta við kvisti á suðurþekju fjöleignarhúss á lóð nr. 22 við Langagerði.
Erindi fylgir afrit af eldri teikningum samþykktum 27. nóvember 1980 og fyrirspurnarteikningum dags. 24. apríl 2019, umboð eigenda íbúðar 01-0101 dags. 23. september 2019 og samþykki meðlóðarhafa áritað á A3 afrit af teikningum A-100 - A-101 dagsettum 3. september 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. október 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. september 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. september 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. janúar 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2021.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Langagerði 4, 6, 8, 20, 24, 30, 32 og 34 frá 3. nóvember 2020 til og með 1. desember 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Kristján Brynjar Bjarnason og Björg Valgeirsdóttir dags. 1. desember 2020.
Stækkun: 1.8 ferm., 9.1 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.