breyting á deiliskipulagi
Járnháls 2-4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 880
18. ágúst, 2022
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. febrúar 2022 var lögð fram umsókn Arkís arkitekta ehf. dags. 1. nóvember 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 2-4 við Járnháls. Í breytingunni felst að lóðinni er skipt upp í tvær lóðir. Kvöð um umferð er sett á lóðina fyrir umferð að Krókhálsi 3 (neðri hæð) ásamt því að ný lóðarlína er dregin í miðju þeirrar kvaðar og bætt við umferð að Krókhálsi 1 (neðri hæð). Byggingarreitir eru stækkaðir og nýtingarhlutfall hækkað ásamt því að kvaðir sem eru á mæliblaði fyrir Járnháls 2-4 eru færðar inn á deiliskipulagsuppdrátt og ný aðkoma er gerð að lóð nr. 4, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 12. október 2021. Umsækjandi var beðin um að hafa samband við embætti skipulagsfulltrúa og er erindið nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111038 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013377