Fjölbýlishús
Vitastígur 9A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 868
13. maí, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
‹ 485764
484932
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Sigurðar Einarssonar dags. 8. desember 2021 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.174.0 vegna lóðanna nr. 9 og 9A við Vitastíg. Í breytingunni felst niðurrif húsanna og enduruppbygging ásamt hækkun á nýtingarhlutfalli og byggingarmagni lóðanna, samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta ehf. dags. 1. desember 2021. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 18. október 2021 og 15. nóvember 2021. Tillagan var auglýst frá 23. mars 2022 til og með 11. maí 2022. Athugasemd barst frá Minjastofnun Íslands í umsögn dags. 28. mars 2022.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.