breyting á deiliskipulagi
Austurstræti 17
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 868
13. maí, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Eikar fasteignafélags hf. dags. 3. mars 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 17 við Austurstræti. Í breytingunni felst að heimilt er að vera með flóttastiga á norðurhlið hússins, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Traðar dags. 28. febrúar 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 5. apríl 2022 til og með 10. maí 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100841 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007459