Fjölbýlishús með verslun og þjónusturými
Hallgerðargata 19
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 684
8. júní, 2018
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. júní 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 3 til 6 hæða fjölbýlishús, staðsteypt, einangrað að utan og klætt álklæðningu, með verslunarrýmum á 1. hæð, 52 íbúðum á efri hæðum og bílgeymslu fyrir 77 bíla í kjallara á lóð nr. 19 við Hallgerðargötu.
Erindi fylgja drög að forhönnun og gæðakröfum bílakjallara dags. 27. júní 2017, samþykktir fyrir Rekstrarfélag bílakjallara Kirkjusands dags. 2017, samkomulag um fyrirkomulag og rekstur bílakjallara dags. í júní 2017 og greinargerð I vegna hljóðvistar dags. í maí 2018. Stærð, A-rými: 9.866,2 ferm., 36.380,7 rúmm. B-rými: 22,7 ferm., 668,5 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

105 Reykjavík
Landnúmer: 225434 → skrá.is
Hnitnúmer: 10124120