Umsókn um byggingarleyfi - Sauna og salerni
Freyjugata 44
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 684
8. júní, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. apríl 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja garðskála sem verður að hluta til staðsteyptur og að hluta til úr gleri á lóð nr. 44 við Freyjugötu. Erindi var grenndarkynnt frá 8. maí 2018 til og með 5. júní 218. Engar athugasemdir bárust.
Undirritað bréf fylgir erindinu. Samþykki frá meðeigenda nr. 44, samþykki hluta eiganda nr. 42 og samþykki frá hluta af eigendum Mímisvegar 8 fylgir. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. apríl 2018 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. apríl 2018. Stærð garðskála er 40,0 ferm., 108,7 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102643 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010762