Fjölbýlishús
Jörfagrund 54-60
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 705
16. nóvember, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram umsókn Home Apartments ehf. dags. 14. maí 2018 ásamt bréfi dags. 7. maí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Grundarhverfis vegna lóðarinnar nr. 54-60 við Jörfagrund. Í breytingunni felst að fjölga íbúðum úr átta í þrettán, færa hús framar í lóðina og færa bílastæði aftar í lóð meðfram langhlið á húsi, samkvæmt uppdr. Aðalsteins V. Júlíusarsonar dags. 15. mars 2018. Tillagan var auglýst frá 1. október 2018 til og með 12. nóvember 2018. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar