(fsp) þjónustumiðstöð
Kjalarnes, Dalsmynni
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 705
16. nóvember, 2018
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. október 2018 var lögð fram fyrirspurn Bjarna Bærings Bjarnasonar dags. 10. október 2018 ásamt greinargerð dags. 28. september 2018 um uppbyggingu á alhliða þjónustumiðstöð fyrir stærri flutningabíla ásamt skiptistöð vegna almenningssamgangna á þeim hluta lóðarinnar Dalsmynni, sem er á mótum Vesturlandsvegar og Kjósarvegar. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Vísað til umsagnar samgöngustjóra og einnig Strætó BS. Óskað er eftir að umsögn liggi fyrir ekki síðar en 29. nóvember nk.