Pizzustaður - loka opnun milli húsa
Grandagarður 11
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 671
2. mars, 2018
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. febrúar 2018 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052968 þannig að gestum fjölgar í 55, koma fyrir þremur snyrtingum á annarri hæð og til að koma fyrir hringstiga frá annarri hæð á norðurhlið húss á lóð nr. 11 við Grandagarð. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. mars 2018.
Samþykki eiganda fylgir dags. 8. júní 2017. Gjald kr. 11.000
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. mars 2018.