Stoðveggir, bílastæði, fjölgun og fækkun eignar og svalir.
Bæjarflöt 19
Síðast Synjað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 821
21. maí, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. maí 2021 var lögð fram umsókn Hermanns Georgs Gunnlaugssonar dags. 16. apríl 2021 ásamt bréfi dags. 16. apríl 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Gylfaflatar suður, með síðari breytingum, vegna lóðarinnar nr. 19 við Bæjarflöt. Í breytingunni felst breyting á byggingarreitum lóðarinnar þannig að allir þrír byggingarreitirnir verða jafnstórir, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Storðar ehf. dags. 16. apríl 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Gylfaflöt 6, 8, 10 og 12.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

112 Reykjavík
Landnúmer: 224867 → skrá.is
Hnitnúmer: 10118359