skipulagslýsing
Borgarlína - Steinahlíð að Katrínartúni
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 850
17. desember, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing fyrir borgarlínu frá Steinahlíð að Katrínartúni. Í lýsingunni felast megin áherslur/atriði í gerð deiliskipulags fyrir göturými borgarlínunnar í samræmi við fyrstu framkvæmdalotu borgarlínunnar. Lýsingin var kynnt frá 22. nóvember til 15. desember 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir/ábendingu/umsögn: Gísli Vilhjálmsson f.h. Kjálka ehf. dags. 9. desember 2021, Egill Jóhann Ingvason og Jón Guðmundsson dags. 14. desember 2021, Fortis lögmannsstofa f.h. eiganda Suðurlandsbrautar 26 dags. 15. desember 2021, Bjarni Pálsson f.h. Mænir Reykjavík ehf. dags. 15. desember 2021 og Bjarni Pálsson f.h. LHF ehf. dags. 15. desember 2021. Einnig er lögð fram umsögn stjórnar íbúasamtaka Laugardals dags. 15. desember 2021, umsögn Veitna dags. 15. desember 2021 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. desember 2021.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.