breyting á skilmálum deiliskipulags
Hverfisgata 90
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 819
7. maí, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar dags. 2. desember 2020 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.174.0 vegna lóðarinnar nr. 90 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst fjölgun íbúða að Hverfisgötu 90 úr hámarki 5 íbúðum í 6 íbúðir. Fjölgunin kemur í stað heimildar fyrir atvinnustarfsemi á lóð, samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta ehf. dags. 28. apríl 2021.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hverfisgata 86 og 86a.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101559 → skrá.is
Hnitnúmer: 10129295