(fsp) breyting á notkun o.fl.
Grandagarður 14
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 618
27. janúar, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2016 var lögð fram fyrirspurn Jóns Davíðs Ásgeirssonar, mótt. 1. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 14 við Grandagarð sem felst í að endurvekja fyrrnefnda stóra opnun sunnanmegin, rífa léttgólf, tveggja hæða rými endurvakið, hafa veitingastað á 1. og 2. hæð og setja nýja timburbryggju hafnarmegin ásamt flotbryggju. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 23. nóvember 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar Faxaflóahafna og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn Faxaflóahafna sf., dags. 23. janúar 2017 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2017.
Svar

Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2017.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100041 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011431