Hækkun húss, kvistur, svalir o.fl.
Vesturbrún 8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 676
13. apríl, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. febrúar 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja kvist á austurhlið og stækka kvist á vesturhlið ásamt því að byggja nýjar svalir á 2. hæð á suðurgafli í fjölbýlishúsi á lóð nr. 8 við Vesturbrún. Tillagan var auglýst frá 9. mars 2018 til og með 6. apríl 2018. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættis afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. ágúst 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. ágúst 2016. Samþykki eigenda dags. 20.06.2016 fylgir erindi. Stækkun: 5,0 ferm., 30,6 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.