39-41 - Breyta kvisti
Akurgerði 39
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 601
16. september, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. júlí 2016 þar sem sótt er um leyfi til að lengja og breikka kvist á norðurhlið, til að breikka áður samþykkt sólskýli um 1,3 metra og að lokum er sótt um leyfi til að breyta þaki bílskúrs við parhús á lóð nr. 39-41 við Akurgerði. Einnig eru lagðir fram breyttir uppdrættir dags. 12. júlí 2016. Erindi var grenndarkynnt frá 15. ágúst til og með 12. september 2016. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. maí 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. maí 2016. Stækkun húss nr. 39: 6,1 ferm., 12,4 rúmm. Hús nr. 41: 6,1 ferm., 12,4 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107890 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006433