breyting á deiliskipulagi
Klettagarðar 7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 729
24. maí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. maí 2019 var lögð fram fyrirspurn ASK Arkitekta ehf. dags. 20. desember 2018 um að færa byggingarreit lóðarinnar nr. 7 við Klettagarða innar á lóð og hliðra til norðvesturs auk þess að reisa stálgrindarhús á lóðinni fyrir hafnartengda starfsemi (verkstæði/lager/skrifstofur), samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta ehf. dags. 11. desember 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. maí 2019.
Svar

Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. maí 2019.

104 Reykjavík
Landnúmer: 178295 → skrá.is
Hnitnúmer: 10101715