breyting á deiliskipulagi vegna Kalksléttu 1 og Koparsléttu 22
Kjalarnes, Esjumelar-Varmadalur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 729
24. maí, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Esjumela á Kjalarnesi. Í breytingunni felst í að rýmka heimildir fyrir iðnaðarstarfsemi með ákveðnum skilyrðum, á tiltekinni lóð á Esjumelum í samræmi við aðalskipulagsbreytingu fyrir svæðið sem er auglýst samhliða. Jafnframt er gert ráð fyrir lóð undir veitumannvirki við norðvesturenda svæðisins, samkvæmt uppdr. Landmótunar dags. 13. febrúar 2019. Tillagan var auglýst frá 27. mars 2019 til og með 8. maí 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.