breyting á deiliskipulagi
Klettagarðar 7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 746
4. október, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn ASK Arkitekta ehf. dags. 19. ágúst 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 7 við Klettagarða. Í breytingunni felst að byggingarreitur er minnkaður og færður til suðvesturs og aðkoma á norðvesturhluta lóðar færist til norðausturs samkvæmt uppdrætti ASK Arkitekta dags. 19. ágúst 2019.
Svar

Lagfærð bókun frá embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 27. september 2019. Rétt bókun er: Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Klettagörðum 1, 3, 4, 5, 9 og 11 og Korngörðum 2.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

104 Reykjavík
Landnúmer: 178295 → skrá.is
Hnitnúmer: 10101715