(fsp) hreinsun ofanvatns fyrir hluta nýs Arnarnesvegar og breikkun Breiðholtsbrautar
Elliðaárdalur við Dimmu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 746
4. október, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Veitna ohf. dags. 7. nóvember 2018 ásamt verklýsingu ódags. um framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar veitukerfa í Elliðaárdal, áfanga 2, frá Rafstöðvarvegi vestur fyrir Reykjanesbraut, samkvæmt teikningahefti Veitna ohf. dags. í september 2018. Einnig er lögð fram ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu dags. 3. september 2018, áætlun um vöktun Elliðaáa vegna þverunar Veitna ódags., kynningaráætlun Veitna vegna endurnýjunar veitukerfa dags. 17. apríl 2019, fornleifaskrá Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 30. september 2019, umsögn Fiskistofu dags. 26. september 2019 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 2. október 2019. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. október 2019.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 4. október 2019. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.