(fsp) breytingar á húseign og lóð
Sólvallagata 14
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 586
20. maí, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. maí 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. maí 2016 þar sem sótt er um leyfi til að sameina íbúðir hússins, byggja tvo kvisti, nýtt anddyri, útitröppur og svalir á vesturhlið, byggja geymslu á baklóð, breyta innra skipulagi og innrétta einbýlishús á lóð nr. 14 við Sólvallagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. maí 2016.
Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 2. maí 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 19. apríl 2016.
Stækkun: 23,6 ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 10.100
Svar

Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 20. maí 2016.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101158 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019413