(fsp) veitingastaður
Skólavörðustígur 18
Síðast Synjað á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 586
20. maí, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 22. apríl 2016 var lögð fram umsókn Arkþings ehf., mótt. 14. apríl 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.0 vegna lóðarinnar nr. 18 við Skólavörðustíg. Í breytingunni felst að byggja við kjallara og 1. hæð hússins til suðurs jafnt við efri hæðir hússins, samkvæmt uppdr. Arkþings ehf., dags. 14. apríl 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. maí 2016.
Svar

Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 20. maí 2016.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.6 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1111/2014.

Landnúmer: 101730 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017677