(fsp) breytingar á húseign og lóð
Sólvallagata 14
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 587
27. maí, 2016
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. maí 2016 þar sem sótt er um leyfi til að sameina íbúðir hússins, byggja tvo kvisti, nýtt anddyri, útitröppur og svalir á vesturhlið, byggja geymslu á baklóð, breyta innra skipulagi og innrétta einbýlishús á lóð nr. 14 við Sólvallagötu.
Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 2. maí 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 19. apríl 2016. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. maí 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. maí 2016. Stækkun: 23,6 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Sólvallagötu 11, 12, 13, 15 og 16 og Hávallagötu 21, 23 og 25.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1.gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101158 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019413