breyting á deiliskipulagi
Vesturgata 30
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 587
27. maí, 2016
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Grímu arkitekta ehf. f.h. Hafnarstræti 1 ehf., mótt. 27. apríl 2016, varðandi niðurrif og uppbyggingu á lóð nr. 30 við Vesturgötu sem felst m.a í hækkun sökkuls á núverandi íbúðarhúsi, niðurrifi viðbyggingar sem reist var við norðurhlið hússins og koma baðherbergjum og stiga sem þar eru fyrir inni í húsinu, niðurrifi skúrbygginga á norðurhluta lóðarinnar, byggingu þriggja sambyggðra nýbygginga nyrst á lóðinni o.fl., samkvæmt tillögu Grímu arkitekta ehf. , dags. 16. maí 2016. Einnig er lögð fram greinargerð Grímu arkitekta ehf. , dags. 22. maí 2016 og frumkostnaðarmat VSÓ ráðgjafar vegna breytinga, dags. í október 2015. Jafnframt eru lagðar fram umsagnir Minjastofnunar Íslands, dags. 3. maí 3016 og 23. maí 2016.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100183 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013676